Rauður raunveruleiki - Alfred de Zayas / Alþjóðalög, mannréttindi og áróður

Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið. Alfred hefur margt til málanna að leggja og er harður gagnrýnandi á tvískinnung Vesturlanda þegar kemur að mannréttindum og alþjóðalögum. Alfred hefur skrifað bækur á borð við “The Human Rights Industry“ (2023), “Building a Just Order“ (2021) og “Countering Mainstream Narratives: Fake News, Fake Law, Fake Freedom“ (2022). Við ræddum við Alfred í kjölfar fundar í Safnarhúsinu vi